Umferðartakmarkanir um verslunarmannahelgina

Umferðartakmarkanir um verslunarmannahelgina Kort hefur verið útbúið sem sýnir myndrænt helstu umferðartakmarkanir.

Umferðartakmarkanir um verslunarmannahelgina

Jafnvel þótt hátíðarhöld um verslunarmannahelgina verði með minna móti þá eru nokkrir smærri viðburðir á dagskrá sem tengjast fjölskylduhátíðinni Einni með öllu. Hjólreiðahátíð Greifans stendur einnig sem hæst auk þess sem fjallahlaupið Súlur Vertical verður haldið á laugardag.

Samþykkt hefur verið að takmarka bílaumferð tímabundið vegna þessara viðburða, ýmist með götulokunum eða umferðarstýringu á fimmtudag, föstudag og laugardag. Þá verða nokkrar götur í miðbæ Akureyrar lokaðar bílaumferð næstu daga líkt og tíðkast almennt um verslunarmannahelgi.

Eftir sem áður er auðvelt að komast um bæinn gangandi eða hjólandi og í ljósi veðurspár er rétt að hvetja íbúa til að skilja bílinn eftir heima ef leiðin liggur í miðbæinn um helgina.

Umferðartakmarkanir um verslunarmannahelgina | Akureyrarbær (akureyri.is)


Svæði

Fylgdu okkur á facebook