KRAKKASKEMMTUN Á EINNI MEÐ ÖLLU

Það verður heljarinnar krakkaskemmtun á laugardeginum á Einni með öllu!

Skemmtunin verður á bílaplaninu hjá Ísbúð Akureyrar kl 14:00 þar sem Eurovisionstjörnurnar Júlí og Dísa koma fram og skemmta öllum krökkum sem mæta.
Einnig mætir Daníel Töframaður og töfrar með áhorfendum, Klói Kókómjólk mætir á svæðið og gefur öllum kókómjólk.
Hvolpasveitin, Blæja og Bára verða á svæðinu til að heilsa upp á káta krakka á svæðinu!
Húlladúlla verður fyrir utan Sykurverk.
Krakkaskemmtunin er í boði Kids Coolshop, Ísbúðin Akureyri, DJ grill, Imperial og Sykurverk