Mömmur og möffins verða að sjálfsögðu yfir Verslunarmannahelgina í ár enda löngu orðinn fastur liður yfir hátíðina.
Allur ágóði af bollakökusölunni rennur ávalt til fæðingadeildar Sjúkrahússins á Akureyri, en í fyrra söfnuðust 1.681.579 krónur sem runnu óskertar til fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri.
Láttu þig ekki vanta á þessa frábæru fölskylduskemmtun um Verslunarmannahelgina, kaupum og borðum möffins í góðum félagsskap og styrkjum gott málefni í leiðinni.
*Nánari upplýsingar og tímasetningar auglýstar síðar