Mikilvægar upplýsingar fyrir tónleika

Laugardagur - FM95BLÖ

Tónleikar hefjast 19:00 svæðið opnar 18:00 - Nældu þér í miða NÚNA -> Miðasala á Tix.is! 

Til þess að komast strax inn á svæðið þarf að sækja armband á tónleika snemma. Það er ekki tryggt að þau sem koma seint að sækja armbönd nái að njóta tónleikanna frá byrjun.

Hægt verður að kaupa varning í tengslum við tónleikana í miðasölu- og armbandaskúr við Akureyrarvöll.

Ekkert aldurstakmark er á tónleikana en 20 ára aldurstakmark er á barsvæði (gestir sýna skilríki við barsvæðið og fá þá sér armbönd sem veitir þeim aðgang á það svæði).

Eigið áfengi er ekki leyfilegt á svæðinu. Leitað verður í töskum, allar töskur þurfa að vera minni en 20x30cm. Að sjálfsögðu eru barnavagnar og þess háttar útbúnaður leyfilegur.

Glerílát eru með öllu óheimil á svæðinu.

Frítt er inn fyrir 12 ára og yngri en þurfa þau að mæta í fylgd með fullorðnum. Þau þurfa ekki að ná sér í miða heldur mæta bara með fullorðnum á tónleikana.

Tónleikasvæði opnar kl 18:00, tónleikar hefjast kl 19:00 og standa til miðnættis. Eftir tónleika eru fríar strætó ferðir sjá hér. 

Sunnudagur - Sparitónleikar

Tónleikar hefjast 19:00 - Frítt inn í boði Egils Appelsín

Sparitónleikarnir hafa í gegnum tíðina verið fjölmennasti viðburður hátíðarinnar. Við hvetjum fólk til að klæða sig eftir veðri, jafnvel koma með teppi. Öll fjölskyldan er velkomin.

Við mælum með að fólk komi snemma og komi sér vel fyrir með fjölskyldu og vinum. Götubitar verða allir opnir veðurspáin er glæsileg að vanda.

Barsvæðið verður í gangi, 20 ára aldurstakmark er á barsvæði (gestir sýna skilríki við barsvæðið og fá þá sér armbönd sem veitir þeim aðgang á það svæði).

Glerílát eru með öllu óheimil á svæðinu.

Tónleikasvæði er opið allan daginn - tónleikar hefjast kl 19:00 og standa til 00:00 og enda á flugeldasýningu. Eftir tónleika eru fríar strætó ferðir sjá hér. 

 

Hérna má sjá alla innganga sem hægt er að nýta með armbandi

Það þarf ekki armband á sunnudeginum.

Takið eftir miðasölu/armbanda skúr er staðsetur við aðalinngang sem er opinn föstudag til sunnudags.

Kort af Akureyrarvelli

Það er mjög mikilvægt að sækja armband á viðburði með vel fyrir viðburði til þess að þurfa ekki að bíða lengi í röð og nýta alla innganga.