Listamaðurinn, söngvarinn og rapparinn Deisí er 8 ára gamall og ætlar að flytja lagið sitt 'Fyrsta markið mitt' á Krakkaskemmtunni sem er á Akureyrarvelli laugardaginn 1. ágúst milli kl 14-16.
Hann hefur komið fram á öðrum bæjarhátíðum í sumar og Ein með Öllu fær að njóta góðs af hæfileikum hans. Mælum með að hlusta á hann á Spotify undir listamannsnafninu 'Deisí'!