Dýraeigendur - hátíðarsvæði og flugeldasýning

Einn af föstu hápunktum Einnar með Öllu er flugeldasýningin sem lýsir upp Akureyrarhiminn og í ár verður hún haldin á sunnudagskvöldi 2. ágúst, rétt um miðnætti (aðfaranótt mánudags). Flugeldunum verður skotið upp frá klöppunum norðan við Akureyrarvöll, við hlið lögreglustöðvarinnar, og sýningin er í höndum Súlna björgunarsveitar.

Við viljum gefa dýraeigendum smá fyrirvara svo hægt sé að undirbúa þá ferfætlinga sem eiga erfitt með hvelli og hávaða. Hvort sem um er að ræða hunda, hesta eða önnur dýr sem bregðast við flugeldum, þá er gott að vita af sýningunni með góðum fyrirvara svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir.

Og fyrst við erum að tala um dýrin að þá eru hundar hjartanlega velkomnir á hátíðarsvæðið! Við biðjum eigendur einfaldlega um að hafa þá í bandi og treysta eigin mati á því hvort hundurinn njóti þess að vera í fjölmenni og fjörinu sem fylgir hátíðinni.

Við hlökkum til að sjá ykkur á Einni með Öllu og þökkum öllum dýraeigendum fyrir hjálpina við að gera hátíðina ánægjulega fyrir bæði fólk og ferfætlinga.

Framkvæmdastjórn Einnar með Öllu.