Virðum götulokanir, veitum þeim forgang í bílastæði sem eiga erfitt með gang eða fjölskyldufólki með mörg lítil börn. Það er mikilvægt að við sýnum hvort öðru tillit, virðum hraðamörk og komumst öll örugg heim.
Auk götulokana verður 30 km/klst hámarkshraði í suður Glerárgötuna við Akureyrarvöll. Sýnum aðgát með gangandi vegfarendum.
Bílastæðum fyrir hreyfihamlaða (P-merki) verður fjölgað norðan við Ráðhús Akureyrar líkt og sýnt er á myndinni.
Leggjum í lögleg bílastæði. Njótum fjölskylduhátíðarinnar Ein með Öllu 2026!