Lalli töframaður ætlar að sjá til þess að krakkar á öllum aldri skemmti sér vel á Akureyrarvelli laugardaginn 2. ágúst, á krakkaskemmtuninni sem er á milli kl 14-16.
Mun Lalli töframaður plata ömmu þína úr skónum? Mun Lalli töframaður blása upp blöðru með nefinu? Mun Lalli töframaður láta úrið þitt hverfa?
Þú verður að mæta til að komast að því!