Ef þú ert búin/n/ð að kaupa miða á Stadium tónleika, í Sjallann eða í Bogann að þá getur þú náð í armbandið/armböndin þín daganna 29-30. júlí á Vamos eða 31. júlí-1. ágúst við suðurhlið Akureyrarvallar.
Það fer enginn inn á viðburð nema vera búinn að ná sér í armband, þau gilda sem aðgangspassi inn á viðburði. Það þýðir ekki að mæta með miða í hurð, þarft að vera með armband. Það minnkar biðtíma þegar er verið að koma fólki inn á svæði eða hús. Mundu eftir skilríkjunum!
Afgreiðsla armbanda er opin:
Vamos
Miðvikudaginn 29. júlí kl 17-20
Fimmtudaginn 30. júlí kl 17-20
Suður hlið Akureyrarvallar
Föstudaginn 31. júlí kl 15-22
Laugardaginn 1. ágúst frá kl 11 og fram yfir Stadium tónleika.
Sunnudagur 2. ágúst frá 18 og fram yfir Sparitónleika
Vertu endilega með miðann klárann, þú átt að vera með kóða í tölvupósti.
Hér má sjá kort af svæðinu, takið eftir að armbönd eru sótt frá föstudegi og fram á sunnudag fyrir framan innganginn á Akureyrarvelli. Þar er einnig hægt að kaupa varning í tengslum við Stadium tónleika.

