Páll Óskar mætir á Eina með öllu og stígur á svið á Sparitónleikarnir á sunnudagskvöldinu!
Páll Óskar hefur fylgt okkur nánast frá upphafi Einnar með öllu og er orðinn órjúfanlegur hluti af stemningunni sem gerir helgina svona sérstaka.
Það væri hreinlega ekki alveg eins án hans – og sem betur fer verður engin breyting á því í ár.
Palli mætir á svæðið með alla sína stærstu slagara, ótrúlega sviðsframkomu og þá einstöku orku sem hann einn kann að skapa. Það má búast við brekkusöng, dansi, gleði og algjörri veislustemningu þegar hann mætir á sviðið.
Sunnudagskvöldið verður stórkostlegt – og Páll Óskar sér til þess að við endum helgina með stæl!