Skógardagurinn 2026

Kl. 13:00 - Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi er í boði Nettó. Frábært tækifæri fyrir alla fjölskylduna til þess að kynnast töfrum skógarins, eina helstu útivistarparadís Akureyringa. Skógræktafélag Eyfirðinga, Vinir Akureyrar (Ein með öllu) og Nettó taka saman höndum og halda Skógardaginn hátíðlegan um Verslunarmannahelgina!

Svenni og Regína mæta og syngja með krökkunum.

Húlla dúlla mætir á svæðið.

Blæja og Bára verða á svæðinu í stuði fyrir myndatökur.

Ís í boði Ísbúðarinnar.

Fornbílasýning Bílaklúbbs Akureyrar á Birkimel.

Ávextir í boði Nettó.

Klæðum okkur eftir veðri, tökum með teppi og höfum það notalegt í skóginum okkar!