Að baki Sýnilegum foreldrum um versló eru foreldrar sem vilja styðja við fjölskylduvænt viðburðahald á Akureyri og gera krökkunum okkar kleift að taka þátt á meðan við skiptumst á að vera til taks á hliðarlínunni. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að vera foreldri ungmennis í grunn- eða framhaldsskóla á Akureyri, vera án áfengis/vímuefna á meðan við erum í gulu vestunum og tilbúin(n) til að nálgast krakkana með brosi og hlýju.
Foreldrar sem bjóða sig fram klæðast merktum vestum í eigu Einnar með öllu og skuldbinda sig til þess að ganga um, vera sýnileg, brosmild, spjalla við krakka sem vilja og láta viðbragðsaðila vita ef krakkar eru í neyð einhvers staðar eða ef hættulegar aðstæður skapast. Sýnilegir foreldrar eru hvorki að blanda sér í mál né grípa beint inn í. Frekari upplýsingar verða veittar við upphaf vaktanna.
Vaktir hefjast og þeim lýkur inni í Stúkunni á íþróttavellinum.
Nánari upplýsingar hér https://fb.me/1VBIpNk2PIEfvnc á Facebook
Sýnilegir foreldrar eru sjálfboðaliðar og fá ekki greitt fyrir að vera með í fjörinu - Hvenær getur þú verið með?