Tónlistardagskrá EMÖ 2026 kynnt: Landslið íslenskrar tónlistar mætir á Akureyri

EMÖ 2026
EMÖ 2026

Akureyri verður sannkölluð tónlistarborg verslunarmannahelgina 2026 þegar fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer fram dagana 31. júlí til 3. ágúst. Nú hefur verið kynnt glæsileg tónlistardagskrá hátíðarinnar þar sem saman koma vinsælustu tónlistarmenn landsins ásamt efnilegum nýliðum.
Það mun jafnvel bætast í dagskrána, en þetta eitt og sér er nóg til þess að þú hugsir þig ekki tvisvar um hvert á að fara um Versló!

Miðasala á laugardagstónleika er á tix.is og frítt er á sparitónleikana á sunnudagskvöld.