Fjölskylduhátíðin ‘Ein með Öllu’
Sumarið er fljótt að líða. Það styttist óðfluga í verslunarmannahelgina og fjölskylduhátíðin Ein með Öllu á Akureyri er ein fjölmennasta hátíð landsins. Gera má ráð fyrir auknum fjölda gesta í bænum, þar á meðal fjölmörgum ungmennum sem leggja leið sína til Akureyrar yfir helgina.
Í undirbúningi hátíðarinnar hafa fulltrúar Akureyrarbæjar, lögreglu, forvarna- og velferðarþjónustu, barnaverndar, grunn- og framhaldsskóla ásamt skipuleggjenda hátíðarinnar komið saman til að samræma aðgerðir og tryggja örugga og jákvæða upplifun fyrir alla gesti.
Ein með Öllu er fyrst og fremst fjölskylduhátíð og því viljum við minna á mikilvægt hlutverk foreldra og forsjáraðila. Foreldraábyrgð nær til 18 ára aldurs og reynslan sýnir að virk þátttaka foreldra er einn sterkasti verndandi þátturinn í lífi ungmenna.
Reynslan sýnir að áhrifaríkustu verndandi þættirnir eru að:
- foreldrar viti hvar ungmenni þeirra eru og með hverjum,
- foreldrar setji skýr mörk og fylgi þeim eftir,
- foreldrar hafi virkt samtal og samráð sín á milli.
Við hvetjum ykkur foreldra sérstaklega til að:
- ræða fyrirfram við ungmennið um áform helgarinnar,
- samræma viðmið við aðra foreldra,
- leyfa ekki eftirlitslaus samkvæmi,
- fylgjast með ferðum og tryggja örugga heimkomu,
- vera til staðar og aðgengileg ef á þarf að halda.
Akureyrarbær mun, í samstarfi við viðbragðsaðila og skipuleggjendur hátíðarinnar, tryggja sýnilega nærveru á vettvangi alla helgina, meðal annars með flakkandi félagsmiðstöð og aukinni viðveru fagaðila og viðbragðsaðila. Verði barn undir lögaldri fundið ölvað er það skylda fagaðila að tilkynna slíkt til barnaverndar.
Með samstilltu átaki foreldra, samfélagsins, viðbragðsaðila og skipuleggjenda getum við stuðlað að öruggri, jákvæðri og eftirminnilegri verslunarmannahelgi fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.
Dagskrá Einnar með Öllu má finna á heimasíðu hátíðarinnar www.einmedollu.is.
Gerum góða helgi frábæra, saman.
Vinir Akureyrar og starfsfólk Viðburðarstofu Norðurlands