Jónas Sig verður á Sparitónleikunum 2023

Með Jónasi í för verður vinahópurinn – súpergrúppan sem er skipuð Ómari Guðjónssyni, Arnari Þór Gísasyni og Guðna Finnson. Jónas og félagar hafa haldið sig til hlés á þessu ári og verður Jónas lítið á ferðinninæstu mánuði vegna annara verkefna. Það er því einstakt tækifæri að komast á tónleika með Jónasi og félögum um verslunarmannahelgina og upplifa orkuna sem þessi hópur hefur skapað með sér og galdurinn í tónlist Jónasar.